Hestafjörshátíðin okkar í Hestamannafélaginu Sleipni verður haldin í Reiðhöll Sleipnis á Brávöllum næstkomandi laugardag, 28. apríl kl. 10:30. Þar verða ýmsir hópar hestamanna og -kvenna, á öllum aldri, með alls kyns sýningaratriði; munsturreið og þrautabrautir ásamt öðrum skemmtiatriðum. Látið ekki þennan viðburð framhjá ykkur fara. Aðgangur ókeypis, léttar veitingar verða seldar í hléi.
Sjáumst,Æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Sleipnis

Hestafjor2018 1.2