Fundur með landsliðsnefnd LH  í Samskipahöllinni í Spretti í kvöld kl. 17:30

Kynntur verður lykill að vali landsliðsins – leiðin að gullinu á HM2017 í Hollandi! Einning mun hinn ástsæli þjálfari A-landsliðs karla í knattspyrnu, Heimir Hallgrímsson flytja gríðarlega áhugaverðan fyrirlestur. Þar fer maður með margbrotna reynslu sem við hestamenn getum klárlega nýtt okkur við undirbúning okkar landsliðs sem fara mun á HM. Undirbúningurinn byrjar í kvöld! Fylgist með starfi og undirbúningi landsliðsnefndar LH og leiðinni að gullunum á HM í sumar!

https://www.facebook.com/events/1860337337538587/

http://www.lhhestar.is/is/moya/news/fundur-landslidsnefndar-lh-heimir-hallgrimsson-fyrirlesari

Um leið mun LH kynna til leiks nýja samstarfsaðila, sem standa munu með okkur í mikilvægum undirbúningi liðsins okkar og starfi LH.

Það er ókeypis inn, og léttar veitingar í boði.

Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir.

Landsliðsnefnd LH

landslid