Forsíða
Gæðingamót Sleipnis Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Mótanefnd   
Mánudagur, 13 Júlí 2009 16:58

Hestamannafélagið Sleipnir mun halda opið gæðingamót helgina 25.-26. júlí.
Keppt verður í;

Lesa meira...
 
Gæðingarmót Sleipnis Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Mótanefnd   
Laugardagur, 04 Júlí 2009 10:11

Verður haldið að Brávöllum 25.-26. júli nk.  Mótanefnd auglýsir eftir sjálfboðaliðum við framkvæmd mótsins. Einnig vantar fólk til að sjá um veitingar fyrir starfsfólk á mótinu. Áhugasamir hafi samband við Reyni Þór formann mótanefndar á netfangið www.reynirthor@visir.is eða í síma 898-0929.

Með von um góð viðbrögð félagsmanna.

Mótanefnd.

 
Íslandsmót fullorðinna Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Mótanefnd   
Fimmtudagur, 02 Júlí 2009 10:52
Skráning á Íslandsmót fullorðinna skilist á netfangið reynirthor@visir.is og þarf að vera lokið fyrir kl. 18:00 föstudaginn 3. júlí. Fram þarf að koma kennitala knapa, nafn á hrossi og IS númer. Skráningargjald er 4000 kr á grein og þarf að greiðast fyrir kl. 18:00 á föstudag inn á reikning:

Rk. 152-26-100774
Kt. 590583-0309

Nánari upplýsingar gefur Reynir Þór í síma 898-0929.

Upplýsingar um mótið má finna á www.lettir.is

 

 
Worldfengur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stjórn   
Sunnudagur, 28 Júní 2009 12:57

Nú eiga skuldlausir félagsmenn Sleipnis kost á því að fá frían aðgang að Worldfengur.

Þeir sem hafa áhuga á að fá slíkan aðgang verða senda tölvupóst á oseyri@oseyri.is með kennitölu, nafni og tölvupóstfangi félagsmans.

Þegar upplýsingarnar eru komnar í hús tekur smá tíma að vinna úr þeim og sendur verið tölvupóstur þegar aðgangur hefur verið virkjaður.

Nánari upplýsingar fást hjá oseyri@oseyri.is

 
<< Byrja < Fyrra 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 

Könnun

Vilt þú taka þátt í sjálfboðaliðastarfinu við Sleipnis-reiðhöllina
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !

Hverjir eru tengdir

Það er/u 23 gestir inni
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is