Forsíða
Baðtúrinn 22 maí. Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ritstjóri 2   
Miðvikudagur, 19 Maí 2010 20:47

Stefnt er að því að fara árlegan baðtúr Sleipnis á laugardaginn 22. maí.

Lagt verður af stað frá Hliðskjálf klukkan 13:30

Stoppað verður hjá Kalla og Írisi á Óseyri þar sem seldar verða léttar veitingar á gegn vægu gjaldi og því um að gera að hafa smá aur með sér í vasa.

Sjáumst sem flest hress og kát þeir sem geta með heilbrigð hross.

Kveðja, ferðanefndin.

 
Fundur með frambjóðendum í Árborg Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stjórn   
Mánudagur, 17 Maí 2010 17:57

Hestamannafélagið Sleipnir boðar til fundar með frambjóðendum til sveitastjórnarkosninganna í Árborg, mánudaginn 24.maí kl. 20:00 í Hliðskjálf.
Fjallað verður um málefni hestamanna í Árborg, þar á meðal um reiðvegamál og fasteignagjöld hesthúsa í sveitafélaginu.

Fjölmennum og tökum þátt í umræðum.
Stjórnin.
                                                                                               

 

 

 
Reiðhöllin okkar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stjórn   
Miðvikudagur, 12 Maí 2010 22:19
Góða kvöldið kæru félagar 

Síðasta helgi í sjálboðavinnu var mjög vel sótt og var stemmingin frábær. Takk fyrir það.

Því miður endist okkur ekki flasningaefnið til þess að klára það sem áætlað var.Nú er það efni komið á staðinn og ætla fyrstu menn að mæta klukkan átta í fyrramálið og skrúfa niður flasningarnar á þakið. Stefnt er að því  að klára það verk á morgun svo hægt verði að setja þakgluggann á laugardaginn. En til þess að það takist þarf góðan hóp af mönnum og konum, sérstaklega á morgun fimmtudag. Það væri frábært ef þú sæir þér fært um að mæta á morgun og um helgina þó ekki væri nema hluta úr degi. Sjáumst hress á morgun og um helgina, með borvélina að vopni.
 
Reiðtúr um Ölfusið 08. maí er aflýst. Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stjórn   
Föstudagur, 07 Maí 2010 11:08

Áður auglýstur skemmtireiðtúr um Ölfusið þann 08.maí hefur verið aflýst vegna hestaflennsunar.

Kv. nefndin

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 

Könnun

Vilt þú taka þátt í sjálfboðaliðastarfinu við Sleipnis-reiðhöllina
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !

Hverjir eru tengdir

Það er/u 22 gestir inni
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is