|
Skrifað af Stjórn
|
|
Fimmtudagur, 19 Nóvember 2009 13:46 |
|
Nú félagsmaður góður munu nokkrir sjálfboðaliðar og félagsmenn Sleipnis ganga í hús og heimsækja alla félagsmenn og aðra hestamenn á félagssvæðinu. Munu þeir kynna þeim stöðuna á því verkefni sem framundan er, þ.e. reiðhöllinni. Einnig munu þeir bjóða þér að styrkja þetta verkefni með kaupum á Hlutdeildarskirteini í höllinni. Hægt verður einnig að skrá sig fyrir sjálboðavinnu hjá þeim. Hér á eftir verða birtir nokkrir punktar á verkefninu okkar þér til fróðleiks. Með kærri þökk og von um góðar viðtökur. Nokkrar staðreyndir um Sleipnishöllina Húsið - Höllin er 1250fm2 að stærð eða 25*50m
- Gert er ráð fyrir að reiðsvæði verði að lámarki 20*40
- Áhorfendabekkir fyrir 125-200 manns verða með annari hlið húsins ásamt inngangi og wc aðstöðu
- Sveitarfélagið Árborg hefir gert samning þess efnis við félagið að það leggur til lóðina og öll tilheyrandi stofngjöld endurgjaldslaust undir höllina.
- Húsið er keypt af BM Vallá –Límtré á Flúðum eftir að þeir komu bestir út úr útboði
- Óli frá Læk hefur nú þegar grafið fyrir sökklunum og gefið vinnu sína við það.
- Ræktó er nú að keyra í skurðinn og þjappa og gefur þá vinnu einnig. Sú grús var gefin af Helga og Helgu í Kjarri og Fossvélum
- Búið er að heita á félagið lagnaefni frá Set ehf, samið hefur verið við Steypustöðina um gott verð á steypu í sökkul.
- Verið er að semja við Vörðufell um uppslátt á sökkli en þeir voru með hagstæðasta tilboðið eftir útboð.
Fjármögnun - Hestamannafélagið fær greiddar 25 milljónir úr Reiðhallarsjóði Landbúnaðarráðuneytisins
- Sala hlutdeildaskirteina er einn mikilvægasti þátturinn í þessu ferli og áætlum við stóran hluta fjármögnunar með þessum hætti.
- Leitað er nú til félagsmanna og annar hestaáhugamanna eftir stuðningi með kaupum á þeim
- Einnig hefur verið leitað til fjölmargra fyrirtækja og félagasamtaka eftir stuðningi og allstaðar hefur því verið tekið vel. Verið er að fylgja því eftir þessa dagana.
- Mörg fyrirtæki hafa heitið efnisúttektum gegn auglýsingu í höllinni.
- Nánast öll vinna við höllina fer fram í sjálboðaliðastarfi sem skapar mikil verðmæti fyrir félagið og stuðlar að því að húsið muni rísa vonandi skuldlaust.
Sjálboðaliðastarfið - Grunnur okkar á því að geta reist þessa höll er sjálboðaliðastarfið
- Nú þegar eru komin loforð um sjálboðaliðastarf.
- Óli frá Læk hefur nú þegar gefið vinnu sína við að grafa fyrir grunni hallarinnar
- Ræktó er að vinna í því að moka og þjappa fyrir sökkli
- Píparar, rafvirki og múrari hafa lofað sínu framtaki
- En betur má ef duga skal, öll hjálp er vel þegin sama hvort það er að negla, hella á kaffi, leggja rafmagn eða handlanga efni.
Við stefnum á að jákvætt hugafar og umhverfi, allir eru velkomnir.
|