Forsíða
Skráning hafin á Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2010 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Æskulýðsnefnd   
Laugardagur, 24 Júlí 2010 16:53

Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH. Síðasti skráningardagur er 29. Júlí. 
Skráningar hjá Sleipnisfélögum skulu berast á netfangið: rabbih@isholf.is  
Skráningargjald er 4.000 krónur og greiðist inn á reikning : 0152-26-100774 kt:590583-0309. Senda verður staðfestingu greiðslu á netföngin: thytur1@gmail.com og thorbjorn@sudur.is.

 Ath. að skráning er ekki tekin gild nema greiðsla hafi borist.

Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda og í hvaða greinum er keppt.  Gefa  þarf upp IS númer hests og GSM síma þess er skráir.  Hestar þurfa að vera grunnskráðir i World Feng. 

Keppnisgreinar á mótinu eru: 
Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur - Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur - Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur - Skeið 100m (flugskeið) - Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur - Fimikeppni A2 ungmennaflokkur - Töltkeppni T2  

Formaður mótanefndar er Sigrún Þórðardóttir s. 660-5826 og veitir hún allar nánari upplýsingar.

Umsjónarmaður keppnishrossa er Steinbjörn Tryggvason s. 893-5070

Tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi verður með tilboð fyrir mótsgesti Íslandsmóts. Verð 3.000 per mann vikupassi eða 1.500 per mann helgarpassi. Útilegukortið gildir ekki þessa viku. Nánari upplýsingar hjá Erlu í síma 899-0008

 

Auglýsingar

Íslandsmót í hestaíþróttum 2010
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. 


•  Skráning fyrir Sleipnisfélaga skal sendast á thordisv@heimsnet.is fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. 

Það sem koma þarf fram með hverri skráningu er: Nafn og kennitala keppanda, IS númer hests, keppnisgrein.

•  Skráningargjald er 4.000 krónur á hverja skráningu og skal leggja inn á reikning 0152-26-100774 kt 590583-0309 fyrir klukkan 18:00 mánudaginn 16. ágúst. Senda kvittun fyrir greiðslu á thordisv@heimsnet.is og setja kennitölu knapa í skýringu.

•  Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma  698-3168 fyrir 20. ágúst.

•  Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Ljósmyndari - reiðhöll

Stjórn félagsins óskar eftir sjálboðaliða sem er tilbúinn til að mynda framgang reiðhallarinnar. Myndirnar verða settar á heimasíðuna að hluta til og einnig notaðar sem heimildir þegar á líður fyrir félagið. Ekki er verra ef sá sami geti skrifað hjá sér helstu atriði hverju sinni. Reiðhöllin er mikið framfaraskref og er áríðandi að halda til haga heimildum um framgang og framtak Sleipnisfélaga  og annarra vellunnara verkefnisins.

 

Ef þú hefur áhuga endilega hafðu samband í síma 868-9982

 

Bestu kveðjur,

Stjórnin.

 
Sjálfboðavinna - Reiðhöll

Nú er svo komið að límtrésgrindinn að reiðhöllinni kemur til okkar á föstudaginn.

Við ætlum að hafa hitting á fimmtudaginn kl 17:00 í Hliðskjálf og fara yfir verkáætlun hallarinnar.

Fyrsta vinnuhelgin er núna um helgina föstudag-laugardag og sunnudag.

Við hvetjum sem flesta til að láta sjá sig á hittingnum og eiga létt spjall.

Þeir sem ekki sjá sér fært um að mæta á fimmtudaginn geta einnig fylgst með á sleipnir.is en þar mun verkáætlunin koma inn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja,

Reiðhallarnefndin

 

 
Viltu ganga í Sleipni
Viltu ganga í­ Sleipni? Hafðu þá samband við einhvern í­ stjórninni, nánar auglýst síðar
 
Þessi fyrirtæki styrkja Sleipni.

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Við styrkjum þau !
Hestamannafélagið Sleipnir, keyrt af Joomla! utlit fra SiteGround web hosting, vefhysing Moli.is