Lög Sleipnis
1.gr.
Nafn félagsins er Hestamannafélagið Sleipnir, og er heimili þess og varnarþing á Selfossi.
2.gr.
Stefna félagsins er að efla áhuga og þekkingu manna á hestum, ágæti þeirra, hestaíþróttum og stuðla að réttri og góðri meðferð hesta. Þessu markmiði hyggst félagið ná með því, meðal annars
1. Að eignast góðan sýningar og skeiðvöll, efna þar til hestaíþróttamóta, kappreiða og reiðsýninga í sambandi við þær.
2. Að efna til verðlaunasamkeppni milli úrvalsgæðinga.
3. Að fræða félagsmenn og aðra um rétt uppeldi hesta, tamningu, fóðrun og hirðingu.
4. Að safna og varðveita sannar sagnir um afbragshesta og afrek þeirra.
5. Að skrásetja sögur um ferðalög félagsmanna á hestum og geyma þær í skjalasafni félagsins.
3.gr.
Reglugerðir um verðlaun og viðurkenningar sem keppt er um á vegum félagsins skulu samdar af stjórn og í samræmi við óskir gefenda verðlaunagripa, eftir því sem við verður komið.
4.gr.
Félagsmenn geta allir orðið sem áhuga hafa á málum félagsins. Umsókn um inngöngu í félagið skal berast skriflega til stjórnarinnar, sem metur umsóknina og svarar henni. Úrsögn úr félaginu skal einnig vera skrifleg. Félagsmaður sem skuldar árstillag, missir félagsréttindi sín. Árstillag skal greiða fyrir 31. maí ár hvert.
5.gr.
Stjórn félagsins skipa 5 menn, auk tveggja varamanna. Stjórnin skal kosin skriflega á aðalfundi. Kosningu skal haga þannig, að formaður sé kosin til tveggja ára í senn. Aðrir í stjórn skulu kosnir sameiginlega, til tveggja ára, og skulu þeir úr sínum hópi velja varaformann, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda í samráði við formann. Annað árið skal kjósa formann og tvo stjórnarmenn, en hitt árið tvo stjórnarmenn. Varastjórn skipa tveir menn, sem einnig eru kosnir á aðalafundi, til tveggja ára. Sé varamaður kosin í aðalstjórn, skal kjósa mann til að ljúka hans kjörtímabili. Við kosningu formanns eru allir stjórnarmenn, ásamt varamönnum hlutgengir, en séu þeir kosnir skal kjósa menn til að ljúka þeirra kjörtímabili. Félagsmaður, sem setið hefur í stjórn í eitt eða fleiri kjörtímabil getur ef hann óskar eftir því, neitað endurkjöri næsta kjörtímabil. Formaður er fulltrúi félagsins út á við og hefur yfirumsjón með starfsemi félagsins. Stjórnin boðar félagsfundi og formaður stjórnar þeim, eða skipar fundarstjóra. Í fundarboði skal greina fundarefni. Ritari geymir bækur og skjöl félagsins og ritar gjörðabók á fundum. Öll önnur skjöl félagsins skulu geymd á aðgengilegan hátt á skrifstofu félagsins. Féhirðir hefur fé félagsins á vöxtum og annast allar fjárreiður þess.
6.gr.
Heimilt er að stofna sérstakar svæðadeildir í félaginu og skulu þær starfa eftir ákveðnum reglum sem aðalfundur félagsins ákveður.
7.gr.
Stjórn félagsins gerir tillögur til aðalfundar um kosningu fastanefnda. Störf þeirra og kjörtímabil fara eftir reglum sem stjórnin semur. Falli maður úr þessum nefndum á kjörtímabilinu, skal stjórnin skipa mann í hans stað. Í aðrar nefndir skipar stjórn eftir þörfum.
8.gr.
Að fengnu leyfi stjórnvalda getur félagið gefið mönnum kost á því að veðja um flýti hesta á kappreiðum. Annast stjórnin þann undirbúning og ábyrgist að öllu sé hagað eftir reglum þeim, sem um það gilda.
9.gr.
Fundir skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir, eða ef 1/10 - einn tíundi hluti- félagsmanna óskar þess. Aðalfund skal halda í síðasta lagi 20. febrúar ár hvert og skal boða til hans bréflega með a.m.k. viku fyrirvara. Almennan félagsfund eða aðra fundi á vegum félagsins fyrir utan aðalfund má auglýsa á annan hátt með nægum fyrirvara og skal tilgreint fundarefni. Fundur er lögmætur ef 1/10 -einn tíundi hluti- lögmætra félagsmanna sækir hann. Sé fundur ekki lögmætur, má boða til hans á ný á venjulegan hátt, og er hann þá lögmætur án tillits til tölu fundarmanna.
10. gr.
Reikningsárið er almanaksárið. Árstillag félagsmanna skal ákvarðast af aðalfundi. Á aðalfundi skal tilnefna tvo skoðunarmenn reikninga og senda skal ársuppgjör félagsins til HSK fyrir 1. mars ár hvert.
11.gr.
Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi, þar sem mættir eru minnst 1/10 -einn tíundi hluti- lögmætra félagsmanna og 2/3 -tveir þriðju hlutar- atkvæða samþykkja lagabreytinguna. Tillögur um lagabreytingar skulu kynntar í fundarboði.
12.gr.
Ef kemur til að leysa félagið upp, verður það að gerast á fundi, þar sem mættir eru minnst ¾ -þrír fjórðu hlutar- lögmætra félagsmanna, og verður það þá aðeins gjört, að 2/3 -tveir þriðju hlutar- fundarmanna greiði því atkvæði. Að öðrum kosti verður að kalla saman fund á ný, og verður félagið leyst upp á löglegan hátt, ef 2/3 -tveir þriðju hlutar- fundarmanna greiða því atkvæði, án tillits til tölu fundarmanna. Verði félagið leyst upp, renna allar eigur þess til HSK.
13.gr.
HVAR ER HÚN ER EINHVER HJÁTRÚ Í GANGI
14.gr.
Með lögum þessum eru úr gildi numin eldri lög félagsins.
STJÓRNIN