Sem kunnugt er sér HSK um framkvæmd 27. Landsmóts UMFÍ, sem haldið verður á Selfossi dagana 4. – 7. júlí í sumar.
Ósk um aðstoð sjálfboðaliða til starfa á landsmótinu
Til þess að mótið verði að veruleika þurfum við á miklum fjölda sjálfboðaliða að halda. Því hvetjum við aðildarfélög og einstaklinga til að taka á með okkur og bjóða fram krafta sína til vinnu við mótið, hvort sem er við framkvæmd íþróttakeppninnar eða gæslu og þjónustu við keppendur og gesti.
Skráning sjálfboðaliða er hafin á netfangið landsmotumfi@umfi.is og er stefnt að því að manna allar stöður fyrir 10. júní.

Sendist til Hestamannafélagsins Sleipnis, Box 174, 802 Selfoss eða í tölvupósti til Önnu Sívertsen á netfangið: annasiv@simnet.is með eftirfarandi upplýsingum:
Nafn, kennitala, heimilisfang og virkt netfang.
Skuldlausir félagsmenn fá frían aðgang að WorldFeng. Til að virkja þann aðgang er sendur tölvupóstur á netfangið oseyri@oseyri.is með ósk um aðgang.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: Nafn, kennitala, heimilisfang og gilt netfang ( e-mail ).