- Published: 17 January 2021
Þar sem ekki er mögulegt að halda löglegan aðalfund Sleipnis vegna samkomutakmarkana hefur stjórn félagsins ákveðið að biða þar til a.m.k. 80 mega koma saman. Undirbúningur fyrir fundinn hefur verið í vinnslu og munum við vera tilbúin með stuttum fyrirvara þegar nauðsynleg rýmkun samkomutakmarkana verður sett á.
Stjórnin tilkynnir hér með, að aðalfundur mun verða auglýstur á vef og Facebook síðu félagsins auk þess sem sent verður fréttabréf til áskrifenda en hægt er að gerast áskrifandi að rafrænu fréttabréfi Sleipnis með því að fara á vefsíðu félagsins og velja hnapp hér til hægri, "Skráning á póstlista" og klára skráninguna.
Athugið að fyrirvari fundarboðsins gæti orðið skammur eða allt niður í eina viku til að nýta rýmri samkomutakmörkun því hún getur breyst aftur með stuttum fyrirvara.
Þeir sem vilja bjóða sig fram í stjórn eða nefndir eru beðnir að hafa samband í netfangið stjorn@sleipnir.is