Sumarfjarnám 1. og 2. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 20. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Skráning fer fram á sportabler:

https://www.sportabler.com/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 4601467 & 863-1399 og/eða á vidar@isi.is

Dæmi um svör frá nemendum í fjarnámi ÍSÍ þegar þeir voru spurðir út í helstu kosti námsins:

„Faglegt og gott námsefni, þverfagleg nálgun á þjálfun og gott samband inn í íþróttagreinar”

„Lærdómsríkt, skemmtilegt og nytsamlegt” „Gott aðgengi að kennara og vel útskýrt námsefni” „Hellings fróðleikur um þjálffræði” „Mjög gott að geta stundað flott nám í fjarnámi” „Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn” „Mér fannst það ýta undir gagnrýna hugsun og kenndi mér ýmislegt hagnýtt sem hefur nýst mér í þjálfarastarfinu”

„Góðir kennarar og vel valið efni” „Farið vel yfir langflesta þætti sem snúa að þjálfun” „Kemur með kunnáttu/þætti sem margir íþróttamenn hafa ekki vitneskju um en eru gríðarlega mikilvægir” „Það er alhliða og hefur ólíkar nálganir” „Vel skipulagt og skýr áætlun” „Gott skipulag, gott kennsluefni og kennarinn er fljótur til svars þegar maður þurfti hjálp“ „Mjög margir, get ekki þulið þá alla upp“

Með bestu kveðju,

Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ

27 Mar, 2023

Skráning í Sleipni

hnappur skrafelagid

Sækja um WF

hnappur WFadgangur

Fréttabréf Sleipnis

hnappur frettabref

Persónuvernd

hnappur personuvernd

Skipulagsmál

Skipulagsmal

Félagsheimili

Hnappur Felagsheimili

Reiðhöll dagatal


Mars
26Mar Sun 8:00 - 18:00 Frátekin v .Reiðmaðurinn 
27Mar Mán 10:20 - 12:10 Frátekin v. FSU hestabraut 
27Mar Mán 16:30 - 20:00 Reiðnámskeið Æskulýðsnefnd 

Hliðskjálf dagatal


Mars
27Mar Mán 18:00 - 19:00 Frátekin v fundar 
27Mar Mán 19:00 - 22:00 Frátekið v .Húsnefnd 

Apríl
1Apr Lau 12:00 Frátekið 

Styrktaraðilar

Innskráning ritstjóra



Hverjir eru tengdir

We have 362 guests and no members online

Flettingar á síðu

Users
6
Articles
2267
Articles View Hits
7784561

Vellir dagatal


Apríl
8Apr Lau 12:00 - 16:00 Lokaðri v. Skeið Meistaradeildin 2023 

Maí
17Maí Mið 7:00 - 22:00 Lokaðir v. WR Íþróttamóts Sleipnis 2023 

Júní
3Jún Lau 7:00 - 18:00 Lokaðir v. Gæðingamóts Sleipnis