Á miðnætti tóku gildi nýjar reglur um samkomutakmarkanir og munu þær gilda til og með 17. nóvember. Eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:

  • Almennar fjöldatakmarkanir eru nú 2000 manns. Börn fædd 2006 og síðar telja ekki með í fjöldatölu.
  • Heimilt er að hafa allt að 2000 manns í hverju rými á æfingum og í keppnum.
  • Heimilt er að hafa allt að 2000 manns í hverju rými í áhorfendasvæðum.
  • Heimilt er að hafa ótakmarkaðan fjölda áhorfenda ef allir gestir fæddir 2005 og fyrr framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klst.
  • Skráningarskylda hefur fallið úr gildi og þurfa viðburðarhaldarar ekki lengur að skrá áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu.
  • Almennt gildir 1 metra nálægðarregla nema á sitjandi viðburðum og á viðburðum þar sem hraðpróf eru notuð.
  • Ekki er lengur grímuskylda en mælt er með því að fólk noti grímur þar sem ekki er hægt að viðhafa 1 metra fjarlægð frá ótengdum aðilum.

Áfram er mikilvægt að huga vel að sótthreinsun á sameiginlegum snertiflötum, loftræstingu og persónubundnum sóttvörnum. Einnig er vert að minna á leiðbeiningar frá embætti landlæknis og almannavörnum um smitrakningu í íþróttahreyfingunni sem má nálgast hér

Frétt á vef heilbrigðisráðuneytis.
Reglugerð heilbrigðisráðherra sem gildir frá 20. október til 17. nóvember.
Minnisblað sóttvarnalæknis frá 18. október 2021.

10 Jun, 2023

Skráning í Sleipni

hnappur skrafelagid

Sækja um WF

hnappur WFadgangur

Fréttabréf Sleipnis

hnappur frettabref

Persónuvernd

hnappur personuvernd

Skipulagsmál

Skipulagsmal

Félagsheimili

Hnappur Felagsheimili

Reiðhöll dagatal


Júní
29Jún Fim 7:00 - 22:00 Frátekin v. Íslandsmót 2023 
30Jún Fös 7:00 - 22:00 Frátekin v. Íslandsmót 2023 

Júlí
1Júl Lau 7:00 - 22:00 Frátekin v. Íslandsmót 2023 

Hliðskjálf dagatal


Júní
10Jún Lau 12:00 Frátekin v. húsnefnd 
16Jún Fös 12:00 Frátekin v. húsnefnd 
24Jún Lau 12:00 frátekið v húsnefnd 

Styrktaraðilar

Innskráning ritstjóra



Hverjir eru tengdir

We have 202 guests and no members online

Flettingar á síðu

Users
6
Articles
2299
Articles View Hits
8035036