Hestamannafélagið Sleipnir hélt árshátíð sína í Hvíta húsinu 20 okt. með hefðbundnum dagsskrárliðum. Í ræðu formanns kom fram að Hestamannafélagið Sleipnir er mjög öflugt um þessar mundir, félagsstarf mjög virkt sem kallar á aukna uppbyggingu á félagssvæðinu með tilkomu hestabrautar og annarrar aukinnar starfsemi á svæðinu. Fjárhagur er í bata og margir að nýta Sleipnishöllina sem byggð var í sjálfboðavinnu sér í lagi unga fólkið. Það er að þakka öflugum félagsmönnum sem hafa unnið félaginu gríðarlega mikið gagn undanfarinn ár og fá þannig vinnuframlag sitt til baka að sjá hvað það er að gera fyrir starfið í dag. Stefnt er að ca. 250 m2viðbyggingu við austanverða Sleipnishöll á næsta ári. Stefnum svo á enn frekari uppbyggingu á svæðinu á næstu árum, með bættri lýsingu og uppbyggingu reiðleiða um hverfið og nágrenni. Við erum enn að vaxa sem félag félagatalið að nálgast 600 félaga sem er ríflega 6 % allra íbúa á félagssvæði Sleipnis. 

 

Hátíðin var einnig uppskeruhátíð þar sem félagar voru verðlaunaðir.

Félagi ársins er Ingvar Jónason, fyrir frábært og virkt félagsstarf á árinu sem og á liðnum árum. Sér í lagi þó fyrir mikið starf að umsjón Sleipnishallarinnar. Mætir reglulega til að halda höllinni þrifalegri bæði á virkum dögum og eins þegar meira stendur til með mótahaldi og eða sýningum.

Íslandsmeistarar Sleipnis á árinu 2018 í unglinga- og ungmennaflokki.

  1. Elísa Benedikta Andrésdóttir íslandsmeistari í fjórgang ungmenna.
  2. Glódís Rún Sigurðardóttir Íslandsmeistari í tölti, fjórgang og í samanlögðum fjórgangsgreinum.
  3. Védís Huld Sigurðardóttir Íslandsmeistari í slaktaumatölti
  4. Þorgils Kári Sigurðsson í Gæðingaskeiði.

Bikarhafar Sleipnis 2018

Skeið 100 m Glódís Rún Sigurðardóttir á Blikku frá Þóroddsstöðum á Skeiðl með tímann 7.87 sek.

Skeið 150 m Glódís Rún Sigurðardóttir á Blikku frá Þóroddsstöðum á LM með tímann 14.29 sek.

Skeið 250 m Bergur Jónsson á Sædísi frá Ketilstöðum á Landsmóti með tímann 22.40 sek.

Æskulýðsbikar Sleipni hlýtur; Védís Huld Sigurðardóttir fyrir frábæran árangur sinn á árinu. 5 faldur norðulandameistari, Islandsmeistari unglinga í T2 2sæti í unglingaflokki á LM ásamt mjög góðum árangri í öðrum mótum.

Ræktunarbikar Sleipnis fá Páll Stefánsson Edda Ólafsdóttir og Haukur og Ragga Austurási fyrir Draupnir frá Stuðlum. 

Draupnir hlaut fyrir byggingu 8.70 og hæfileika 8.77 Aðaleinkunn Draupnis er því 8.74 og vakti mikla eftirtekt í sínum flokki á Landsmóti

Efsti hestur A-flokks og skjaldarhafi Sleipnis er Krókus frá Dalbæ eigandi Ari B Thorarensen og Ingunn Gunnarsdóttir. 

Efsti hestur B-flokks og skjaldarhafi Sleipnis er Frami frá Ketilstöðum eigandi Elin Holst.

Íþróttaknapi Sleipnis; Védís Huld Sigurðardóttir fyrir frábæran árangur sinn á árinu. 5 faldur norðulandameistar og Islandsmeistari í slaktaumatölti ásamt öðrum góðum árangri í öðrum mótum.

Knapi ársins; Elin Holst átti frábært keppnisár á Frama frá Ketilstöðum Vann B-Flokk Landsmóts, var efst í B-flokk á Gæðingamóti Sleipnis og önnur á Íslandsmóti í fjórgang ofl. 

{gallery}Arshatid2018{/gallery}