Einkatímar / Ólöf Rún Guðmundsdóttir

Published: 03 February 2023
Written by SRH
  • Print
  • Email
Ólöf Rún Guðmundsdóttir mun bjóða upp á einkatíma í reiðhöll Sleipnis mánudaginn 20. febrúar. Ólöf Rún er útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og hefur stundað reiðkennslu samhliða öðrum störfum á síðustu árum. Einkatímarnir verða 40 mín. langir og verða aðeins 6 tímar í boði að þessu sinni. Ef aðsókn verður góð þá munum við skoða að bjóða upp á fleiri tíma í framhaldinu. Verð pr. tíma er kr. 10.500 og aldurstakmark er 14 ár. Skráning fer fram í Sportfeng og ganga verður frá greiðslu til að staðfesta skráningu. Athugið að tímarnir eru eingöngu ætlaðir félagsmönnum Sleipnis.
https://sportfengur.com/#/skraning/namskeidshaldari
Fræðslunefnd 

1.vetrarmóti Sleipnis frestað

Published: 01 February 2023
Written by SRH
  • Print
  • Email

Í ljósi aðstæðna, mikillar ísingar og hálku á keppnisvöllum Brávalla / Brávöllum sem og slæmrar veðurspár fram yfir helgi hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta 1.vetrarmóti sem áætlað var nú um helgina um allavega eina viku. Tökum stöðuna í byrjun næstu viku

Vetrarmótsnefnd

Félagsfundur 8. febrúar

Published: 10 January 2023
Written by Sigríður M. Björgvinsdóttir
  • Print
  • Email

Félagsfundur um málefni félagsins verður haldinn 8. febrúar kl. 20 í Hliðskjálf að loknum framkvæmdum sem standa yfir í eldhúsi.

Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta og koma skoðunum sínum á framfæri. 

Stjórn Sleipnis

Þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs vorönn 2023.

Published: 31 January 2023
Written by SRH
  • Print
  • Email

Vorfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 6. feb. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Skráning fer fram á sportabler:

https://www.sportabler.com/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 4601467 & 863-1399 og/eða á vidar@isi.is

Read more: Þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs vorönn 2023.

Sirkus helgarnámskeið

Published: 08 January 2023
Written by SRH
  • Print
  • Email

Sirkus helgarnámskeið verður haldið í reiðhöll Sleipnis á Selfossi helgina 18.-19. febrúar 2023. Kennari á námskeiðinu er Ragnheiður Þorvaldsdóttir. Námskeiðið samanstendur af 5 tímum í heildina, 1 bóklegum og 4 verklegum. Lágmarksþátttaka á námskeiðið er 8 manns, hámarksfjöldi er 12. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður námskeiðið í heild sinni ef lágmarksþáttöku er ekki náð. Þriðji hópurinn (þátttakendur 9-12 sem skrá sig) er sömuleiðis háður því að það náist að fylla í hópinn.

Hér gildir því fyrstur kemur fyrstur fær og ganga verður frá greiðslu fyrir námskeiðið til að tryggja sér sæti. Ef námskeiðið verður fellt niður, verður námskeiðsgjaldið að sjálfsögðu endurgreitt.

Stutt lýsing: Laugardagur: 7 games eftir Pat Parelli. Sunnudagur: Smellu þjálfun, brellu þjálfun og umhverfis þjálfun. Unnið er eingöngu með hestinn í hendi.
Útbúnaður sem þarf er snúrumúll og langur mjúkur kaðaltaumur. Smella sem fæst í helstu gæludýrabúðum og Líflandi. Aldurstakmark 12 ára.
Skemmtilegt námskeið til að nálgast hestamennskuna á annan hátt. Ragnheiður leggur mikið upp úr fjölbreitni í þjálfun og að gleyma ekki afhverju við erum öll í hestamennsku, JÚ AF ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER SVO GAMAN.

Skráning fer fram í Sportfeng (velja Ísland sem Land og Sleipnir sem Aðildarfélag:  https://sportfengur.com/#/skraning/namskeidshaldari

Fræðslunefnd

Járninganámskeið með Sigurði Torfa Sigurðssyni járningameistara

Published: 22 January 2023
Written by SRH
  • Print
  • Email

Fræðslunefnd Sleipnis stendur fyrir járninganámskeiði í samstarfi við Sigurð Torfa Sigurðsson járningameistara. Verklegur hluti námskeiðsins mun fara fram í Halakoti dagana 11. - 12. febrúar en bóklegur hluti þess fer fram að kvöldi til vikuna á undan (nánari tímasetning kemur síðar). Verðið verður á bilinu 25-32 þúsund eftir því hve marga þátttakendur við fáum en forskráning fer fram í gegnum þetta form:  HÉR

Upplýsingar um greiðslu verða svo sendar í tölvupósti til þátttakenda þegar skráningu er lokið og verðið staðfest.

Lýsing á námskeiði:

Read more: Járninganámskeið með Sigurði Torfa Sigurðssyni járningameistara

Snjómokstur í hverfinu

Published: 28 December 2022
Written by Sigríður M. Björgvinsdóttir
  • Print
  • Email

Við höfum ekki farið varhluta af fannferginu á Selfossi og margir í vandræðum með að komast í hesthús og að ná inn rúllum.

Sveitarfélagið vinnur snjómokstur eftir forgangskerfi, opnar fyrst stofnbrautir og leiðir úr húsahverfum, að leikskólum o.s.frv.

Reiðvegir koma á eftir göngustígum en ekki hefur gefist tími til að moka þá enn í vetur þar sem kraftur hefur farið í að moka snjó sem safnast fyrir og flytja í burtu. Moksturstæki fara fyrst eina ferð í hverja götu hverfisins til að opna eftir hvert veðuráhlaup. Næst þegar kemur að okkur er snjórinn hreinsaður betur frá húsunum eins og gert var eftir fyrra áhlaupið. 

Til að minnka líkur á að lenda í vandræðum með hey þarf að sæta lagi þegar náðst hefur að moka götur í hverfinu og hreinsa frá húsgöflum.

Ef gleymist að moka inn einhverja götu er best að senda ábendingu til þjónustumiðstöðvar í gegnum ábendingagátt Árborgar en ábendingar sem berast eru flokkaðar og rata á réttan stað til úrvinnslu. Reyndar á þetta við um allar ábendingar til sveitarfélagsins um það sem betur mætti fara og það sem vel er gert.

Skráning í Lífshlaupið hefst 18. janúar nk.

Published: 13 January 2023
Written by SRH
  • Print
  • Email


Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar þurfi að hreyfa sig minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir þurfi að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að huga að eigin heilsu með því að stunda reglubundna hreyfingu. Flestir vita hver ávinningur þess að hreyfa sig reglulega getur verið en hér er smá áminning.
Reglubundin hreyfing stuðlar að bættum svefni, bættum lífsgæðum, dregur úr líkum á ýmsum sjúkdómum og styrkir hjarta- og æðakerfiðLífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • Vinnustaðakeppni frá 1. febrúar – 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri 
  • Framhaldsskólakeppni frá 1. febrúar – 14. febrúar, fyrir 16 ára og eldri 
  • Grunnskólakeppni frá 1. febrúar – 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri 
  • Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

    Read more: Skráning í Lífshlaupið hefst 18. janúar nk.

More Articles ...

  1. Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2023
  2. Jólakveðja
  3. Aðventusýnikennslan að Gegnishólum
  4. Leiðin að gullinu
  5. Aðventusýnikennsla Gangmyllunnar
  6. Dagur sjálfboðaliðans
  7. Fræðslukvöld í Hlíðskjálf
  8. Hæfileikamótun LH
  9. Afmælisnefnd sett á laggirnar
  10. Undirritun styrktarsamnings við Landsbanka Íslands
  11. FEIF leitar að áhugasömum einstaklingum á aldrinum 20-26 ára til að taka þátt í menntanefnd og æskulýðsnefnd FEIF
  12. Leiðrétting
  13. Kynning á deiliskipulagi fyrir félagssvæðið
  14. Uppskeru-Árshátíð Sleipnis 2022
  15. Útsala – Útsala
  16. Árshátíð - uppskeruhátíð Sleipnis 2022
  17. Félagshús Sleipnis 2022- 2023
  18. Fjórðu og síðustu skeiðleikar 2022
  19. Fjórðu og síðustu Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar, Skeiðfélagsins
  20. Frumtamningarnám í Reiðmanninum
  21. Baldvin og Þorvaldur
  22. Síðsumarreiðtúr
  23. Lokanir - Reiðhöll og vallasvæði Brávalla
  24. Sjálfboðaliða vantar á UMFÍ mótið
  25. Skipulag í vinnslu
  26. Landsmótsknapar athugið!
  27. Knapar á LM fyrir Sleipni
  28. Vallasvæði Brávalla lokað.
  29. Skráning hafin á Skeiðleika 2
  30. Sunnudagur 5.júní - Dagskrá Gæðingamóts og úrtöku Sleipnis, Ljúfs, Háfeta og Hendingar.
  31. Gæðinga -úrtökumótið á Brávöllum
  32. Horses of Iceland - Dagur ræktenda á Landsmóti
  33. Dagskrá Gæðingamóts og úrtöku Sleipnis, Ljúfs, Háfeta og Hendingar.
  34. Þjálfaramenntun 1. og 2. stigs sumarönn 2022.
  35. Landsmót 2022
  36. Gæðinga og úrtökumót á Brávöllum
  37. Hestafjör 2022
  38. Viðrunarhólf
  39. Kynning á Helite öryggisvestunum
  40. Til þeirra er það varðar / WR Íþróttamót Sleipnis.
  41. Lokun skeiðbrautarinnar á Brávöllum.
  42. Dagskrá opna WR íþróttamóts Sleipnis 18-22 Mai. 2022.
  43. Lokun skeiðbrautarinnar á Brávöllum.
  44. WR Íþróttamót Sleipnis
  45. 1.skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar - Skeiðfélagsins
  46. Vinna við keppnisvelli á Brávöllum
  47. Hestafjör 2022
  48. Umhverfisdagur á sunnudaginn
  49. Vellir á brávöllum lokaðir í dag
  50. Reiðskóli Sleipnis 2022
  51. Kvennareið 2022
  52. Úrslit úr Páskatöltmóti Sleipnis 13.apríl 22
  53. Úrslit úr Firmakeppnir Sleipnis 30.apríl 2022
  54. WR Íþróttamót Sleipnis og Skeiðleikar
  55. Fundur með framboðum í Árborg
  56. Firmakeppni Sleipnis 2022 -Fyrirtæki
  57. Firmakeppni Sleipnis 2022
  58. Þrígangsmót-Járnkarlsins-Þriðjudaginn 3 maí
  59. Ógreidd félagsgjöld 2022
  60. Sumarferð Sleipnisfélaga 2022
  61. Ógreidd félagsgjöld 2022
  62. Sumarferð Sleipnisfélaga 2022
  63. Viðrunarhólf 2022
  64. Viðrunarhólf 2022
  65. Vorfagnaður Sleipnis í Sleipnishöllinni laugardaginn 23.apríl. 19.30
  66. Vorfagnaður Hestamannafélagsins Sleipnis 23.apríl
  67. Firmakeppni Sleipnis 2022
  68. Dagskrá opna Páskatöltmóts Sleipnis
  69. Kvennakvöld Sleipnis 2022
  70. Kvennakvöld Sleipnis 2022
  71. Námskeið fyrir þuli á mótum
  72. Úrslit þriðja og síðasta vetrarmóts Sleipnis 2022
  73. Páskatöltmót Sleipnis-æfingatímar á Ingólfshvoli
  74. Opið Páskatölt Sleipnir 2022
  75. Sjálfboðaliðar   KOMDU Á LANDSMÓT HESTAMANNA 2022 OG TAKTU VIRKAN ÞÁTT Í ÆVINTÝRINU!
  76. 3.Vetrarmót Sleipnis- Laugardaginn 2.apríl kl. 12.30
  77. Sýnikennsla Fimmtudaginn 14.apríl.nk.
  78. 3. vetrarmót Sleipnis –Byko og Furuflísar
  79. Eiknatímar hjá Sigvalda L Guðmundss.
  80. Úrslit annars vetrarmóts Sleipnis 2022
  81. Kvennakvöld Sleipnis 2022
  82. 2.vetrarmóti frestað um sólahring
  83. Sýnikennsla 24.mars - Fræðslunefnd
  84. 2. Vetrarmót Sleipnis- Furuflísar og Byko 2022.
  85. Aðalfundur Sleipnis 2022.
  86. Til sambandsaðila ÍSÍ
  87. Vilt þú taka þátt í að móta framtíðarsýn Sleipnis?
  88. Úrslit fyrsta vetrarmóts Sleipnis 6.feb. 2022.
  89. 1 Vetrarmót Sleipnis -Furuflísar og Byko 2022.
  90. Að gefnu tilefni
  91. Landsliðshópur A-landsliðshóps valinn
  92. Reiðnámskeið Æskulýðsnefndar Sleipnis vetur 2022. (2)
  93. Reiðnámskeið Æskulýðsnefndar Sleipnis vetur 2022.
  94. Reiðnámskeið Æskulýðsnefndar Sleipnis vetur 2022.
  95. Vinnu í gólfi reiðhallarinnar lokið
  96. Lokið við klæðningu á Hliðskjkálf
  97. Jólakveðja og annáll félagsins
  98. Nýjar sóttvarnarreglur
  99. Nýjar sóttvarnarreglur
  100. Fréttir frá stjórn

Page 3 of 224

  • Start
  • Prev
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • Next
  • End