Reiðhöll Sleipnis opnar á morgun með takmörkunum, miðvikudaginn 13. janúar fyrir almenna notkun þegar ekki eru námskeið eða húsið í útleigu.
Félagsmönnum er bent á að athuga dagatal reiðhallar hvað varðar bókunarstöðu.
Hámark 8 hestar mega vera á reiðgólfi í einu. Hver knapi má vera að hámarki klukkustund inni ef bið er eftir aðgangi.
Knapar skulu þrífa upp eftir hesta sína, bæði af reiðgólfi sem og í hringgerði / stíum í nýju viðbyggingunni.
Knapar skulu vera með hanska og snertiflötum haldið í lágmarki.
Hlíta skal öllum þeim sóttvarnarreglum og nándarmörkum sem í gildi eru.
Áhorfendur og umferð um áhorfendapalla er bönnuð og einnig eru salerni lokuð.
Félagsmönnum og öðrum notendum er bent á að kynna sér almennar reglur reiðhallar sem nálgast má á þessum tengli.
Við höfum fengið Hrafnhildi Helgu Guðmundsdóttur til að halda námskeið og kenna vinnu í hendi. Hún hefur haldið þessi námskeið í bænum og hefur verið mikil ánægja með þau. Farið verður í hvernig hægt er að notast við vinnu í hendi til að hjálpa hestinum að skilja grunnábendingar og ná betri stjórn á yfirlínu og andlegu og líkamlegur jafnvægi. Grundvöllur árangurs er að hesturinn sé sáttu og skilji ábendingar knapans, hvort sem það er frá jörðu eða á baki. Einnig verður farið í grunnatriði í hringteyminginum og hvernig hægt er að nota það sem viðbót við fjölbreytta þjálfun til byggja upp réttu vöðvana í hestinum.
We have 419 guests and no members online