Fimmtu og líklega síðustu Skeiðleikar sumarsins verða haldnir fimmtudagskvöldið næstkomandi og hefjast þeir klukkan 19:00 og er það klukkutíma fyrr en vanalega og það er vegna þess að fallegasti tími ársins er að taka við, allt svo haustið. Vonandi sjáum við sem flesta af því að veðurspáin er frábær og aldrei að vita hvað gerist hjá öllum þeim sterku hestum sem virðast vaxa með hverjum spretti.
Allt verður á sínum stað; 250m og 150m skeið, auk 100m flugskeiðs! Lagt verður upp úr því að láta þetta ganga snarpt fyrir sig eins og venja stendur til. Miðast allt við að knapar og áhorfendur geti átt notalegri kvöldstund. Styrktaraðili skeiðleikanna í ár – Hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur – gefur verðlaunin.
Skráningargjaldið er krónur 2500.- á hest. Skráning er opin og henni líkur þriðjudagskvöldið 19.ágúst á miðnætti og skráning fer fram á http://www.skraning.is/vidburdir/skeidleikar-4-2-2/

Kv. Skeiðfélagið