19. janúar 2011
Námskeið: Kynbótamat íslenskra hrossa, Selfossi

Námskeið um kynbótamat íslenskra hrossa
Boðið fram af Endurmenntun LbhÍ í samstarfi við Hrossaræktarsamtök Suðurlands, fyrir áhugafólk um ræktun íslenska hestsins.
 
Á námskeiðinu verður farið yfir kynbótamatið, uppbyggingu þess og útfærslu. Enn fremur verður farið í þróun kynbótamatsins, samþættingu þess við keppniseiginleika og mikilvægi þess að taka tillit til forvals í gögnum. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á helstu atriðum kynbótamatsins og hvernig ræktendur geti nýtt sé það í ræktunarstarfinu.
 
Kennari: Elsa Albertsdóttir , doktórsnemi við LbhÍ

Staður og stund: Mið. 19. jan. Kl. 19:45-22:00 í félagsheimilinu Hliðskjálf, Suðurtröð á Selfossi.

Verð: 1.000 kr fyrir félagsmenn og 1500 kr fyrir aðra - greiðist á staðnum.

Skráningar hjá Endurmenntun LbhÍ:  Um tölvupóstinn endurmenntun@lbhi.is   (nafn, kennitala, heimili og sími) eða í síma 433 5000   / 433 5000