Fyrsti tími vegna Hestafjörsins 2011 er á morgun miðvikudag 9. mars í reiðhöll Sleipnis kl. 18:00 (ATH! Kl. 18:00 ekki 19:00 eins og áður hefur verið tilkynnt)

Í þessum fyrsta tíma mun Hugrún raða í hópa og fara  yfir það hvað gert verður og hvernig. Um að gera að koma með fullt af hugmyndum til að vinna úr.

Ekki er nauðsynlegt að mæta með hest í þennan tíma, en þó þurfum við einhverja hesta þannig að það væri gott ef að a.m.k þeir sem eru með sína hesta í hesthúsahverfinu mæti með hestinn sinn.

Æskulýðsnefnd