Æskulýðsnefnd Sleipnis hefur til sölu úlpur frá Mountain Horse sem verða seldar á kostnaðarverði, sjá mynd. Úlpurnar verða merktar Sleipni á baki, merki Líflands öðru megin að framan og nafni eiganda úlpunnar hinum megin.

Tilgangurinn með sölunni er að efla þann góða félagsanda sem er að myndast hjá félagsmönnum gegnum öflugt félagsstarf auk þess að stuðla að sterkri liðsheild félagsmanna hvar sem þeir koma saman. Úlpurnar fást í öllum stærðum, eru í félagslitnum(dökkbláar) og kosta barnastærðir 9.500 kr. og fullorðinsstærðir 13.500 kr.

Við verðum með úlpur til mátunar í félagsheimilinu sunnudaginn 13. mars milli kl. 14 og 16. Greiða þarf staðfestingargjald kr. 5000 fyrir hverja pantaða úlpu í reiðufé(höfum ekki posa).