Sunnudaginn 10. apríl var í fyrsta skipti haldin hátíðin Hestafjör en vegna hestaveikinnar í fyrra var hún slegin af.  Að henni stóðu hestamannafélögin  á suðurlandi  og tóku sex félög þátt auk gestaatriða. Hátíðin tókst vonum framar en atriði sýningarinnar voru framkvæmd af börnum og  unglingum  frá hestamannafélögunum, Sleipni, Sindra, Ljúf, Háfeta, Smára og Geysi.  Að auki var gestaatriði frá Hendingu, Íslandsmeistarar Geysis voru með sýningu,  sirkusatriði og leynigesturinn Hulda Gústafsdóttir kom fram með fræðsluatriði sem féll vel í kramið.
Þátttakendur í sýningaatriðum barna og unglinga voru um 100 talsins og þar af voru 29 frá Sleipni.
Stefnt er að því að gera þessa hátíð að árlegum viðburði enda tókst þetta samstarf félaganna á suðurlandi með ágætum og þökkum við þeim gott samstarf.
Æskulýðsnefnd Sleipnis þakkar eftirtöldum fyrirtækjum veittan stuðning við verkefnið.