Fimmtudaginn 16. nóvember næstkomandi kl. 20:00 verður haldin sýnikennsla í reiðhöllinni að Brávöllum. Ólafur Andri Guðmundsson mun koma og sýna hvernig hann hagar þjálfun hrossa sinna. Tilvalið að hefja hestaveturinn á að koma saman og sjá hvernig fagmaður fer að og um leið sýna sig og sjá aðra hestamenn í félaginu.

Aðgangseyrir er kr. 500 (ekki posi) og það verður heitt á könnunni.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Fræðslunefndin