18.okt

Á þingslitafagnaði og 85 ára afmælisárshátíð Sleipnir voru þeir knapar sem skarað höfðu fram úr á árinu verðlaunaðir með bikurum og öðrum viðurkenningum. 

Skeið 100 m Dagmar Öder Einarsdóttir á Oddu frá Halakoti með tímann á 8,04 sek.
Skeið 150 m Daníel Larsen á Dúu frá Forsæti með tímann 14.66 sek.
Skeið 250 m Bergur Jónsson á Minningu frá Ketilstöðum með tímann 23.11 sek.


Ungmennabikar Sleipnis hlaut Brynja Amble Gísladóttir hún varð í Þriðja sæti í Vetrarmótaröð Sleipnis, vann firmakeppni Sleipnis. 2 sæti í 4 gangi á opna WR á Selfossi. Einnig vann hún báðar úrtökurnar í ungmennaflokki fyrir Landsmót og ungmenna flokk Sleipnis. Á landsmótinu varð hún í fimmta sæti í ungmennaflokki.
Efsti hestur Sleipnis í A-Flokk Krókus frá Dalbæ en hann hlaut 8,71 í forkeppni og 8,96 í úrslitum sem er ein hæsta einkunn liðins árs í A-flokk á árinu. Hlaut Sleipinskjöldinn.
Ræktunarbikar Sleipnis fékk Ari Thorarenssen fyrir Krókus frá Dalbæ, Krókus hlaut fyrir byggingu 8.19 og hæfileika 8,90 þar á meðal 10 fyrir skeið. Aðaleinkunn Krókusar er því 8.60
Íþróttaknapi Sleipnis er Haukur Baldvinsson. Hann varð Íslandsmeistari í Gæðingaskeiði á Fal frá Þingeyrum með 8,17 í einkunn og reyndar 3 árið í röð sem hann hlýtur titilinn Íslandsmeistari í Gæðingaskeiði.
Knapi ársins er Olil Amble en hún átti frábært keppnisár sem byrjaði með 3 sæti í einstaklings og liðakeppni Meistaradeildarinnar 2014. Valin fagmannlegasti knapi deildarinnar og sigraði Gæðingafimina með hæstu einkunn frá upphafi. Annað sæti í tölti á opna WR mótinu á Selfossi. Varð Suðurlandsmeistari í meistaraflokk og opinn flokk í 4 gangi á opna WR mótinu á Gaddstaðaflötum
Einnig sýndi hún 13 kynbótasýningar á árinu, aðaleinkunn 8,17. Sat hryssuna Álfastjörnu frá Syðri Gegnishólum til 7 sætis í fjögurra vetra flokki á Landsmótinu og efstu hryssuna í 6 vetra flokki á Landsmótinu, Álfhildi frá Syðri Gegnishólum, sem m.a hlaut 10,0 fyrir tölt og vilja og 9,5 fyrir hægt tölt og fegurð í reið.

Einnig voru Olil og Bergur heiðruð sérstaklega fyrir þann ótrúlega árangur sem þau hafa náð á sviði ræktunar, Þ.a.m. að vera valin ræktunarbú ársins auk fjölda annarra tilnefninga til þeirra verðlauna.