Starfið við reiðhöllina hefur gengið frábærlega í vor og margir hafa mætt í sínum frítíma og lagt hönd á plóg.
Stutt er í fokheldisvottorðið og stefnum við á að reyna ná því í næstu viku. Til að það takist þurfum við að ná góðri vinnuhelgi, föstudag, laugardag og sunnudag.Því reynir á að sem flestir sem treysta sér til mæti nú um helgina. Nú eiga margir að geta komist að og hægt að nýta þau handtök sem bjóðast.
Þeir sem eiga létt handverkfæri mega gjarnan koma með þau með sér.
Vinna hefst á föstudag kl 13:00, laugardag kl 08:00 og sunnudag kl 10:00. Eitthvað ljúffengt verður í eldhúsinu í hádeginu, laugardag og sunnudag.
Sjáumst vonandi hress og kát að Brávöllum
