Nú er komið að öðru vetrarmóti félagsmanna Sleipnis laugardaginn næstkomandi 14.mars á Brávöllum Selfossi kl 13.
Keppt verður á hringvelli í Opnum flokki, 55+ Heldri menn og konur Áhugamannaflokki 1, Áhugamannaflokki 2, Ungmennaflokki , Unglingaflokki, Barnaflokki (aldur 10-13) og Pollaflokki (skipt í tvo hópa s.s teymt undir og án teymingar).

Skráninargjöld:

  • Frítt fyrir börn og polla
  • 1000 kr fyrir unglinga
  • 1500 kr fyrir ungmenni
  • 2000 kr fyrir fullorðna

Skráning fer fram í dómaraskúr við völlinn kl. 11:00 til 12:00.
Skráning í símum: 690-2602 og 771-7802 þá þarf að borga með korti.

Vonumst til að sjá sem flesta.
Kær kveðja Vetrarmótsnefndin.