Breytingar hafa verið gerðar á tímasetningum reiðnámskeiða, sjá neðangreinda töflu. Hópi "Börn-lengra komin" hefur verið skipt upp í tvo litla hópa til að ná betur utan um þau og styttist tíminn af þeim sökum. Aðrir tímar á þriðjudögum eru 50 mínútur. Næsta miðvikudag 9. febrúar mun hver nemandi fá 15 mínútur einn með kennara til að fara yfir og undirbúa stöðuprófið og koma nákvæmar tímasetningar fyrir hvern og einn fram í töflunni hér að neðan.