Þriðjudaginn 1. febrúar hófust reiðnámskeið æskulýðsnefndar Sleipnis í reiðhöllinni okkar og voru það yngstu iðkendurnir sem fengu þann heiður að vígja höllina í sínum fyrsta reiðtíma í ár. Hér má sjá þessa flottu krakka ásamt reiðkennaranum sínum Þorvaldi Árna Þorvaldssyni sem jafnframt er þá fyrsti reiðkennarinn til að vinna í höllinni.