Opið World ranking íþróttamót Sleipnis fer fram á félagssvæði Sleipnis að Brávöllum á Selfossi dagana 20-24 maí. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum en mótið hefst á Skeiðleikum sem einnig verða world ranking. Nú er um að gera fyrir hestamenn að punkta þessa daga hjá sér í dagbókina og taka þátt í glæsilegu íþróttamóti á Selfossi í maí.
Með kærri kveðju Sleipnir og Skeiðfélagið