Fræðslunefnd Sleipnis ætlar að bjóða upp á reiðnámskeið með Heklu Katharínu Kristinsdóttur.
Námskeiðið byrjar núna 5. janúar n.k. Hekla Katharína útskrifaðist frá Hólum árið 2012 sem reiðkennari. Einnig var hún við kennslu á Hólum eftir útskrift og fékk þar mikla reynslu. Hekla hefur staðið sig frábærlega vel á keppnisbrautinni og sem sýnandi kynbótahrossa síðustu ár. Hekla býr og starfar með fjölskyldu sinni á Árbæjarhjáleigu og stundar kennslu bæði hér á Íslandi sem og erlendis.

Tímabil: Janúar-Mars Nemendur: 12
Fyrirkomulagið verður þannig að tímarnir skiptast í 55 mínútur. Nemendur hafa val um hvort þeir vilji hóptíma (55 mín)( þá 2 saman ) eða einkatíma (þá fær hver nemandi ca. 30 mín).
Námskeiði eru sniðin að þörfum hver og eins og/eða í samráði við kennara. Kennslutíminn eru áætlaðir á miðvikudagskvöldum frá klukkan 19:00 – 22:00.
Námskeiði kostar kr. 40.000.- fyrir félagsmenn Sleipnis en 43.000.- fyrir aðra þátttakendur.

Skráning og greiðsla fer fram á Sport feng sjá meðf. vefslóð:
http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Rut Stefánsdóttur netfang: baugstjorn22@gmail.com
Linda Björk Ómarsdóttir, netfang: gjaldkeri@sleipnir.is

Nánari útlistun á námskeiðinu, sjá neðan myndar:

HeklaK

Nemendur: 12
Fyrirkomulagið verður þannig að tímarnir skiptast í 55 mínútur. 2 nemendur hafa val um hvort þeir vilji hóptíma (55 mín) eða einkatíma (þá fær hver nemandi ca. 30 mín).
Kennslutíminn væri oftast miðvikudagar frá klukkan 19:00 – 22:00.
Kennt yrði einu sinni í viku og hópnum yrði skipt í tvennt.
Hópur A (6 nemendur) og hópur B (6 nemendur)
Fyrsti tími yrði 5.janúar – hópur A (þetta er þriðjudagur vegna þess að 6.janúar er þrettándinn)
Annar tími yrði 13.janúar – hópur B
Þriðji tími yrði 20.janúar – hópur A
Fjórði tími yrði 27.janúar – hópur B
Fimmti tími yrði 3.febrúar – hópur A
Sjötti tími yrði 10.febrúar – hópur B
Sjöundi tími yrði 18.febrúar – hópur A (þetta er fimmtudagur)
Áttundi tími yrði 17.febrúar – hópur B
Milli 21.febrúar-4.mars verð ég í útlöndum.
Níundi tími yrði 10.mars – hópur A (þetta er fimmtudagur)
Tíundi tími yrði 9.mars – hópur B
Ellefti tími yrði 16.mars – hópur A
Tólfti tími yrði 23.mars – hópur B