20. - 21. febrúar verður Atli Guðmundsson með námskeið í reiðhöll Sleipnis að Brávöllum Selfossi.
Það verða 2 saman inná í einu og hver kennslustund 40 mínútur 2x hvorn dag (fyrir og eftir hádegi). Atli hefur starfað við reiðkennslu, þjálfun hrossa og tamningar með frábærum árangri til fjölda ár. Atli hefur komið víða við og unnið til fjölda verðlauna í gegnum tíðina bæði á landsmótum í meistaradeildinni og víðar.
Atli hefur miklu að miðla til þátttakanda á námskeiði og er þetta án efa tækifæri sem enginn hestamaður ætti að láta framhjá sér fara hvar sem áhugasvið hans liggur í hestamennsku. Verð er miðað við að full skráning náist (12 sæti í boði) 22.000- fyrir Sleipnisfélaga en 25.000.- fyrir nemendur úr öðrum félögum.
Skráning hér http://skraning.sportfengur.com