Fræðslunefnd Sleipnis býður uppá námskeið í formi einktatíma hjá úrvals reiðkennurum í vetur í reiðhöll félagsins. Á miðvikudögum, frá og með 22. janúar, verða Bergur Jónsson og Maiju Varis með reiðkennslu í formi einkatíma, 45 mínútur hver tími. Í þessum tímum er farið yfir þau atriði sem þarf að bæta hjá knapa og hesti svo samspil þeirra verði enn betra. Knapinn þekkir sinn hest, bæði kosti og galla, og það er hann sem ákveður hvaða atriði hann vill vinna með til bæta sig og hestinn sinn því það er eins með menn og hesta að enginn fullkominn.

Bergur og Maiju eru bæði mjög reyndir reiðkennarar og með mikla reynslu á sínu sviði. Það er því tilvalið að fara á námskeið hjá þeim og fá leiðsögn að settu marki, hvort sem er í keppni eða almennum útreiðum. Námskeiðin standa yfir í 10 vikur þar sem kennt er annan hvern miðvikudag og því gefst tækifæri að fara yfir það sem lagt er upp með í hverjum tíma. Bergur verður með tíma 23. jan, 6. feb, 20. feb, 6. mars og 20. mars Maiju verður með tíma 30. jan, 13. feb, 27. feb, 13. mars og 27. mars Námskeiðið kostar kr. 33.000 og er hægt að gefa út kvittun fyrir viðkomandi stéttafélag sé þess óskað. Skráning fer fram á https://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add