Fræðslu-og æskulýðsnefnd Sleipnis hefur ákveðið að standa fyrir fyrirlestri um járningar og hófhirðu.
Fyrirlesari er Sigurður Torfi járningameistari.
Verð fyrir félagsmenn 1000kr og 1200kr fyrir aðra.
Frítt fyrir 21 árs og yngri Sleipnisfélaga.
ATH greiðist með reiðufé!
Fyrirhugað er að hafa svo tvö járninganámskeið í febrúar/mars, annars vegar styttra námskeið fyrir þá sem vilja geta bjargað sér ef skeifa dettur undan t.d. í ferðalögum og svo lengra alhliða járningarnámskeið. Skráningar á námskeiðin verða á fyrirlestrinum eða með tölvupósti á thordisv@heimsnet.is Nánar auglýst síðar.