Þegar kom að því að halda heim á leið á laugardagskvöldið úr gleðskapnum í Hliðskjálf komst ég að því að það vantaði vinstri skóinn minn en sá hægri beið mín. Skórnir eru báðir merktir með appelsínugulu bandi í fremri hanka á hvorum skó. Þeir eru nr. 40 eða 41 af ætt Redback skóa minnir mig og með rauðu innleggi í. Svo ég kæmist heim á leið tók ég eina staka vinstri skóinn sem finnanlegur var á svæðinu - sá er tveimur númerum stærri og merktur með hvítu límbandi á fremri hanka skósins. Ég skilaði þeim skó í Hliðskjálf í gær og þar er hann einn.
Vinsamlegast ef þú ert með reiðskó með appelsínugulu bandi í fremri hanka (ef það hefur ekki horfið) viltu hafa samband í síma 862 1909