Þá er komið að fyrsta vetrarmóti félagsmanna Sleipnis sem verður haldið laugardaginn , 8. febrúar á Brávöllum Selfossi kl 13.

Keppt verður á hringvelli í Opnum flokki, Áhugamannaflokki 1, Áhugamannaflokki 2, Ungmennaflokki , Unglingaflokki, Barnaflokki (aldur 10-13) og Pollaflokki (skipt í tvo hópa s.s teymt undir og án teymingar).

Skráningargjöld:

  • Frítt fyrir börn og polla
  • 500 kr fyrir unglinga
  • 1000 kr fyrir ungmenni
  • 1500 kr fyrir fullorðna

Skráning fer fram í dómaraskúr við völlinn kl. 11:00 til 12:00.
Skráning í símum: 7717802 og 8455034, þá þarf að borga með korti.

Vonumst til að sjá sem flesta.
Kær kveðja Vetrarmótsnefndin.