Annað vetrarmót Sleipnis fyrir félagsmenn verður haldið næstkomandi laugardag 1.mars á Brávöllum Selfossi kl 13.
Keppt verður á hringvelli í Opnum flokki, Áhugamannaflokki 1, Áhugamannaflokki 2, Ungmennaflokki , Unglingaflokki, Barnaflokki (aldur 10-13) og Pollaflokki (skipt í tvo hópa s.s teymt undir og án teymingar ).
Skráningargjöld:
Frítt fyrir börn og polla, 500 kr fyrir unglinga, 1000 kr fyrir ungmenni, 1500 kr fyrir fullorðna.
Skráning fer fram í dómaraskúr við völlinn kl. 11:00 til 12:00. Skráning í síma:8455034 þá þarf að borga með korti.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Kær kveðja Vetrarmótsnefndin.