Þá er komið að fyrsta vetrarmóti félagsmanna Sleipnis sem verður haldið laugardaginn næstkomandi 14.Febrúar á Brávöllum Selfossi kl 13.
Vetrarmótsnefnd hefur ákveðið að bæta við öðrum flokki í keppnina og vonum að verði góð þáttaka í 55+ heldri menn og konur.
Keppt verður á hringvelli í Opnum flokki, 55+ Heldri menn og konur Áhugamannaflokki 1, Áhugamannaflokki 2, Ungmennaflokki , Unglingaflokki, Barnaflokki (aldur 10-13) og Pollaflokki (skipt í tvo hópa s.s teymt undir og án teymingar).
Skráninargjöld:
- Frítt fyrir börn og polla
- 1000 kr fyrir unglinga
- 1500 kr fyrir ungmenni
- 2000 kr fyrir fullorðna
Skráning fer fram í dómaraskúr við völlinn kl. 11:00 til 12:00.
Skráning í símum: 771-7802 og 845-5034 , þá þarf að borga með korti.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Kær kveðja Vetrarmótsnefndin.