Skráning í sumarferð Sleipnis er hafin. Hægt er að senda skráningu á netföngin hér að neðan.  

Dagskrá ferðainnar:
Laugardagur 13.júní.
Ferðin hefst á Hellu og verður lagt af stað þaðan kl. 11, riðið upp Gunnarsholtsveg að Reynifelli, síðan um Vatnsdal hjá Tumastöðum og síðan að Hellishólum þar sem við njótum kvöldvarðar og gistingar í smáhýsum.  Gist er í uppábúnum  rúmum.  Áætluð dagleið er ca .33.km

Sunnudagur 14.júní.

Frá Hellishólum er haldið suður Markarfljótsaura að Landeyjarvegamótum, síðan austur með landeyjum að Bakkaflugvelli.  Þaðan vestur gljánna að Skíðbakka og í Gunnarshólma en þar mæta kokkarnir frá Hellishólum og elda kvöldverð fyrir okkur. Gist verður í tveim sölum í félagsheimilinu Gunnarshólma og er þar svefnpokagisting.  Áætluð dagleið er ca. 33.km.

Mánudagur 15.júní.

Eftir morgunver er  haldið vestur Landeyjar að Hólmsá, síðan upp með henni að Ártúnum þaðan yfir Þverá og að Hellu þar sem ferðin endar. Áætluð dagleið er ca. 39.km.

Verð pr. mann er kl. 25.000

Lokadagur skráningar er 31.maí nk.

Vinsamlega greiðið inn á reikning : Banki 0586 HB 14 Reikn 402120  kt. 251051-4559   
 (  0586-14-402120 kt.2510514559 )

Ferðanefndin
Grétar:
gretar@set.is
Valur: ValurGisla@gmail.com