Framlengdur Skráningafrestur á opið gæðingamót Sleipnis Opið Gæðingamót Sleipnis Helgina 5-7 júní fer fram opið gæðingamót Sleipnis, mótið verður haldið að Brávöllum Selfossi. Skráning er nú opin en hún lokar klukkan 18:00 miðvikudaginn 3.júní og fer hún fram á vefnum og er slóðin á skráningarvefinn eftirfarandi www.sportfengur.is Fólk fer inn á þessa síðu og velur þar Hestamannafélagið Sleipnir og svo opið gæðingamót Sleipnis.

Auk hefðbundinna gæðingakeppnisgreina verður boðið upp á C-flokk en hann er hugsaður fyrir byrjendur í gæðingakeppni. Riðnir eru tveir hringi og sýnt fet,tölt og/eða brokk og stökk. Einnig verður boðið upp á keppni í tölti á laugardagseftirmiðdag ef næg þáttaka næst. Skráningagjöld eru 4000 krónur fyrir A,B,C,Ungmenaflokk og Tölt en 3500 á barna- og unglingaflokk. Fólk getur bæði greitt með kreditkorti og með millifærslu og þarf millifærslan þá að vera búinn að berast fyrir miðnætti þriðjudaginn 2.júní. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja Gæðingamótsnefnd Sleipnis