Nú er komið að frágangi og lokaskráningu inn á reiðnámskeið Æskulýðsnefndar.
Við í æskulýðsnefndinni erum búnar að búa til skráninga- og greiðsluform í Sportfeng þar sem er hægt að skrá krakkana og greiða fyrir námskeiðin. Sendur hefur verið tölvupóstur til hvers forráðamanns þar sem kemur fram klukkan hvað hvert barn er skráð og við hvetjum ykkur til að skrá ykkur á réttum tíma.
Skráning fer fram í Sportfeng: http://skraning.sportfengur.com/
Ætli menn að skrá barnið/börnin á 8 tíma námskeið (fram að Hestafjörsæfingum) er hakað í „Fyrra námskeið átta skipti“, en ef börnin ætla að vera á 12 tíma námskeiði er hakað við BÆÐI „Fyrra námskeið átta skipti“ og „Seinna námskeið fjögur skipti“. Athugið að seinni námskeiðin eru ofar í listanum. Barnið þarf að vera félagsmaður í Sleipni til að skráningin gangi í gegn. Athugið að nýskráning i Sportfeng getur tekið hálfan sólahring að virkjast. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða með millifærslu í heimabanka. Verð á 8 tíma námskeiðinu er 10.000,- og á 4 tíma námskeiði eftir Hestafjör er 5.000,-; samtals 15.000,- fyrir bæði námskeið. Námskeiðsgjaldinu er stillt í hóf og afslættir verða ekki veittir. Íbúar í Árborg, og mögulega öðrum sveitarfélögum, gefst kostur á að sækja um tómstundarstyrk.

Kveðja, Æskulýðsnefndin