Einstakt tækifæri – afrekshópur LH
Stjórn LH hefur í hyggju að setja á stofn afrekshóp ungra knapa. Tilgangur verkefnissins er að búa unga knapa undir að takast á við stór verkefni á sviði hestamennskunnar bæði hér heima og á erlendum vettvangi. Stjórnandi hópsins verður Páll Bragi Hólmarsson liðstjóri ísl landsliðsins.
Fyrirkomulag uppbyggingarinnar er eftirfarandi:
• 20. – 22. mars - Æfingadagar með reiðkennurum, dómurum og fyrirlesurum
• Maí - þátttaka í móti og yfirferð yfir sýningar með dómurum. Reiðkennari stýrir.
• Sept - okt æfingahelgi og uppskeruhátíð. Farið verður yfir keppnistímabilið og framhaldið metið.
Viðburðir á vegum verkefnisins verða þrír á árinu og er skyldumæting á þá alla.
Gjaldgengir í hópinn eru knapar á aldrinum 17-21 árs, þ.e. knapar á síðasta ári í unglingaflokki + ungmennaflokkur.
Kostnaður knapa er kr. 30.000 fyrir árið. Einstakt tækifæri fyrir unga knapa til að bæta sig og byggja upp keppnishestinn sinn á markvissan hátt.
Í umsókn skulu koma fram allar grunnupplýsingar um umsækjandann, sem og lýsing á keppnisárangri undanfarin tvö keppnisár. Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2016 og skulu umsóknir berast á netfangið lh@lhhestar.is fyrir þann tíma.
Páll Bragi veitir nánari upplýsingar um hópinn, hann er með netfangið austurkot@simnet.is.
Stjórn LH