Járningarnámskeið verður haldið dagana 5 og 6. mars að Völlum í Ölfusi í reiðhöll Eldhesta. Hvort námskeið stendur yfir í einn dag. Kennari verður Daniel Van Der Blij.

Dagskrá:  Laugardagur 5. mars.  

Kl. 08.15 – 09:45.   Stutt almenn kynning og fræðileg framsetning.

Kl. 10:00.  Sýnikennsla og í beinu framhaldi járna þátttakendur undir leiðsögn

Kl. 12:00 - 13:00.  Léttur hádegisverður á Hótel Eldhestum.

Kl.13:00-15:45.  Járning undir leiðsögn og lítil keppni í lok námskeiðs.

Kl. 16:00 – 16:30.  Samantekt og spurningum þáttakenda svarað

Dagskrá:  Sunnudagur  6. mars   -  framhaldsnámskeið

Kl. 08.15 – 09:45.   Stutt almenn kynning og fræðileg framsetning.

Kl. 10:00.  Sýnikennsla og í beinu framhaldi járna þátttakendur undir leiðsögn

Kl. 12:00 - 13:00.  Léttur hádegisverður á Hótel Eldhestum.

Kl.13:00-15:45.  Járning undir leiðsögn og endað með keppni.

Kl. 16:00 – 16:30.  Samantekt og spurningum þáttakenda svarað

Daniel hefur verið starfandi járningarmaður í mörg ár, ásamt að kenna járningar  m.a. við Landbúnaðarskólann í Strömsholm. Einnig starfað á dýraspítölum með hesta sem sérgrein. Daniel hefur einnig starfað við járningar á Íslandi í mörg sumur.  Hann var valinn járningarmaður ársins í Svíþjóð árið 2013.

Verð:  10.000.- per dag.

Innifalið:  Námskeið,  léttur hádegisverður og aðgangur að kaffi allan daginn.

Bókanir sendist á info@eldhestar.is