Skráningavandamál á Páskatöltmót Sleipnis
Vegna tæknilegra örðuleika í samskiptum Sport Fengs við gagnagrunn félagsins hjá ÍSÍ ( Felix ) hefur ekki verið hægt að skrá sig á mótið gegn um Sport Feng síðan í gær, mánudag.
Tenging verður að öllum líkindum ekki komin í lag fyrr en á morgun, miðvikudag. Þeir sem hafa ekki náð skráningu og eða eiga eftir að skrá sig á mótið geta gert það með eftirfarandi aðgerð:
Senda tölvupóst á : ingi12345@gmail.com
Í honum þarf af koma fram:
Nafn knapa og kennitala
IS númer hests
Í hvaða flokki skal keppa
Upp á hvaða hönd verður riðið
*************************************************
Skráningagjöld:
17 ára og yngri (unglingaflokkur) T7 -- 1500 kr
Ungmennaflokkur T3 -- 2000 kr
Áhugamannaflokkur T7 -- 2500 kr
Opinn Flokkur T3 -- 2500 kr
Skráningagjald skal leggja inn á reikning nr. 0152-26-100774 kt. 590583-0309 og senda skal kvittun á netfangið gjaldkeri@sleipnir.is