Hinn 13 maí hefst keppnisnámskeið æskulýðsnefndar Sleipnis að nýju og verður námskeiðið fjögur skipti, 13. maí - 3. júní og kennt á mánudögum. Eins og í vetur verður Ragnhildur Haraldsdóttir kennari námskeiðsins.
Núna ætlum við að vera eingöngu úti á velli (nema ef veður verður mjög slæmt), og verður um einkatíma að ræða.
Hver tími er 20-25 mín og biðjum við nemendur því um að vera búin að hita hesta sína upp eftir þörf hvers og eins og klára í braut þegar þeirra tími hefst.
Endilega sendið skráningu á lindab@btnet.is og tilgreinið ef þið hafið ósk um tímasetningu fyrir ykkar knapa.
kær kveðja,
Æskulýðsnefnd