Þriðju Skeiðleikar sumarsins
Þriðju skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar sumarið 2019 verða haldnir á Brávöllum á Selfossi miðvikudagskvöldið 24.júlí. Skráning er í gegnum Sportfeng þar sem velja þarf Skeiðfélagið sem aðildarfélag Skráningarfrestur er frá og með kvöldinu í kvöld fram á mánudaginn 22.júlí
Nú eins og undanfarinn ár er keppt í stigakeppni sem nær yfir allt keppnistímabilið.
Til mikils er að vinna í heildarstigakeppninni þar sem hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur gefur stigahæsta knapa ársins 100.000 kr gjafabréf í verslun sína. Heildarsigurvegari skeiðleika vinnur einnig farandbikar sem gefinn er af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon