Þriðjudaginn 26. nóvember kl. 20 verður haldin fyrirlestur og sýnikennsla í reiðhöll Sleipnis.

Auður G. Sigurðardóttir hestanuddari heldur fyrirlesturinn.
Farið verður í hvað felst í reglulegri ástandsskoðun á hestinum og hvernig við sem hestaeigandur/þjálfarar getum tileinkað okkur kunnáttu til að uppgötva og bregðast við áður en
vandamálin verða stærri og illviðráðanlegri. Farið verður einnig í hver eru helstu vandamálin
sem upp koma og hvernig hægt er að bregðast við þeim.

 

EFNI FYRIRLESTRAR ER M.A. :
• Kostir þess að gera ástandsskoðun á hestunum okkar og hvernig við framkvæmum hana
• Hver eru helstu vandamálin sem ég rekst á, einkennin og hvað hægt er að gera til að fyrirbyggja
• Hvað það er sem við viljum forðast
• Nokkrar góðar æfingar

Auður mun svo sýna nokkrar æfingar á hesti sem gott er að kunna.

Verð er 1000 kr fyrir Sleipnisfélaga og 2000 kr fyrir aðra ,frítt fyrir 14 ára og yngri. Ekki posi.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga með ykkur notalega kvöldstund.

Fræðslunefnd Sleipins