Þá er komið að 2. vetrarmóti Sleipnis og verður það eins og áður var sagt í samstarfi með Gæðingadómarafélagi Íslands en keppt verður í B- flokki og A- flokki. En þess má geta að þetta mót fellur undir stigakeppnina á mótunum þannig það er til mikils að vinna
Athuga skal að riðið er eftir þul !!
Mótið hefst klukkan 12:00
Flokkarnir verða
Skráning fer í gengum SPORTFENG og velja verður Sleipni sem mótshaldara til að skrá og finna mót.
Ef vandræði eru við skráningu endilega sendið póst á vetrarmotsnefnd@sleipnir.is
Skráning er frá 1. mars til miðnættis 5. mars.!!!
Pollaflokkur (óbreyttur) skráning á staðnum milli 11:00 - 11:30
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Áhugamannaflokkur 2 (til að skrá sig í þennan flokk skal velja C1 flokk á Sportfeng)
Áhugamannaflokkur 1 (til að skrá sig í þennan flokk skal velja C flokk á Sportfeng)
Heldri menn og konur (55+) (til að skrá sig í þennan flokk skal velja C1 flokk þar sem stendur Gæðingakeppni 2 á Sportfeng)
Opinn flokkur ( Heitir B-Flokkur)
Sérstök forkeppni verður riðin í öllum flokkur nema Pollaflokki.
Barnaflokkur
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,
- Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu
- Tveir hringir brokk og/eða tölt
- Tvær umferðir stökk, betri ferð gildir til einkunnar
- Stjórnun og áseta x 2
- Deilitala fyrir dómara er 4
Unglingaflokkur
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,
- Tveir hringir hægt tölt.
- Tveir hringir brokk frjáls hraði.
- Tvær umferðir yfirferðargangur á langhliðum, annað hvort tölt eða brokk.
- Stjórnun og áseta
- Deilitala fyrir dómara er 4.
Ungmennaflokkur
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,
- Tveir hringir hægt tölt.
- Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
- Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
- Fegurð í reið
- Vilji
- Deilitala fyrir dómara er 5.
Áhugamannaflokkur 2
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,
- Fet
- Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
- Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
- Fegurð í reið
- Vilji
- Deilitala fyrir dómara er 5.
Áhugammaflokkur 1
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,
- Tveir hringir hægt tölt.
- Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
- Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
- Fegurð í reið
- Vilji
- Deilitala fyrir dómara er 5.
Heldri menn og konur (55+)
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,
- Fet
- Tveir hringir brokk, frjáls hraði.
- Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
- Fegurð í reið
- Vilji
- Deilitala fyrir dómara 5
Opinn flokkur
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu,
- Tveir hringir hægt tölt.
- Tveir hringir brokk frjáls hraði.
- Tveir hringir greitt tölt á langhliðum.
- Vilji x 2
- Fegurð í reið x 2.
- Deilitala fyrir dómara er 7.
A-Flokkur gæðinga
Þrír til fimm hestar inni á hringvellinum í einu.
- Tveir hringir tölt x 2
- Tveir hringir brokk frjáls hraði
- Ein umferð skeið, einn og einn í einu x 2
- Vilji x 2
Taka skal fram uppá hvora hönd er riðið við skráningu!
Skráningargjöld :
- Frítt fyrir börn og polla
- Unglingar kr.1000
- Ungmenni kr.1500
- Fullorðnir kr.2000.