Undirbúningur fyrir hið árlega kvennakvöld Sleipnis er í fullum gangi. Nefndin hefur bjartsýni að leiðarljósi og vonast til að samkomubanni verði aflétt fyrir þann tíma. Að vanda er kvennakvöldið síðasta vetrardag í Hliðskjálf, 22. apríl. Konur, endilega takið daginn frá! Við lofum miklu fjöri svo þið hafið eitthvað til að hlakka til. Nánari upplýsingar er nær dregur.

Kveðja, nefndin.