Fyrstu skeiðleikar ársins fara fram á Brávöllum á Selfossi miðvikudagskvöldið 20.maí. Eins og kynnt var um daginn að þá verður nú hægt að veðja á skeiðleika í gegnum www.lengjan.is og verða stuðlar á hesta birtir fljótlega eftir að ráslistar hafa verið kunngjörðir.
Þær frábæru fréttir eru einnig að sjónvarpsstöðin alendis mun sýna beint frá öllum skeiðleikum ársins. Stjórn Skeiðfélagsins fagnar því mjög að hafa fengið þá við liðs við sig til þess að sýna frá skeiðleikum sem þykja ganga hratt fyrir sig og vera sjónvarpsvænir.
Þessi tvö atriði að ná skeiðleikunum í beina útsendingu og einnig að hægt verður að veðja á úrslit þeirra verða vonandi til þess að skeiðgreinar nái að blómsa enn frekar.
Skráningu lýkur í kvöld sunnudaginn 17.maí og vegna þess að um veðreiðar er að ræða verður ekki hægt að skrá sig eftir að skráningu lokar.
Skeiðfélagið