Á morgun, laugardag,verður Sleipnishöllinni lokað vegna boðaðs vinnudags við höllina.
Það eru nokkur lítil verk sem þarf að koma í verk, til dæmis.
Skipta um ljósaperur í sal. Stjórnin er búinn að fá lánaðan lyftara með körfu í það verk.
Setja flasningar í gaflglugga nýhbyggingar og ganga frá festingum samlokueininga við sökkul og festa upp flasningar á einingar.
Setja upp stíur þegar búið er að leggja út sand í fordyri ( búið er að leggja út sand í helming nýbyggingarinnar).
Það eru einnig fleiri lítil verk, sem munu bíða nema því fleiri geti mætt.
Sökklar að bíslaginu norðan við höllina voru steyptir í gær, fimmtudag, gott ef hægt væri að slá utan af þeim nú á laugardaginn.
Stjórn reiðhallarinnar óskar eftir sjálfboðaliðum til að taka til hendinni þennan dag ýmislegt sem þarf að gera.
Við getum skipt okkur upp í td. þrjá vinnuhópa ( 2-4 í hverjum ) og allar sóttvarnarreglur verða í hávegum hafðar.
Nú er vetur að ganga í garð og nauðsynlegt að loka nýbyggingunni og gera þannig úr garði að við getum farið að hafa not af henni.
Við áætlum að hittast í reiðhöllinni kl.09.30
Kveðjur, stjórn Reiðhallarinnar.