Tveir Sleipnisfélagar hlutu útnefningu sem knapar ársins í gær þegar tilkynnt var um valið í höfuðstöðvum ÍSÍ. Þetta eru þær Ragnhildur Haraldsdóttir, sem er íþróttaknapi ársins og Glódís Rún Sigurðardóttir, sem er efnilegasti knapi ársins. Vill stjórn Sleipnis óska þeim innilega til hamingju. Sleipnir átti einnig fleiri knapa/bú á meðal tilnefndra og óskum við þeim að sjálfsögðu einnig til hamingju með árangurinn.
Tilnefndir Sleipnisfélagar.
Daníel Gunnarsson - Skeiðknapi
Glódís Rún Sigurðardóttir - Efnilegasti
Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir - Efnilegasti
Sigursteinn Sumarliðason - Skeiðknapi
Ragnhildur Haraldsdóttir - Íþróttaknapi
Syðri-Gegnishólar/Ketilsstaðir - keppnishestabú og ræktunarbú ársins
Myndir fengnar hjá LH