Þriðja og jafnframt síðasta vetrarmót Sleipnis og Furuflísar verður haldið laugardaginn 27. mars n.k. og hefst kl. 12:00 á Brávöllum.
Skráning mótsins fer fram á mótaforritinu sporfeng eins og verið hefur hjá okkur í vetur og stendur skráning yfir frá þriðjudeginum 16. mars til föstudagsins 26. mars kl 15:00.
https://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Mótið verður með öðru sniði en áður hefur verið en að þessu sinni verður keppt í Gæðingatölti. Segja má að gæðingatölt sé einskonar blanda af gæðingakeppni og vetrarmóta fyrirkomulagi. Í Gæðingatölti er riðið hægt tölt og yfirferðatölt eftir skala gæðingadómara sem verða 3 talsins. Forkeppni er riðin í hverjum flokki þar sem inn á velli verða 3-4 knapa í einu og svo eru 8 efstu knapar sem ríða úrslit í hverjum flokk. Í öllum flokkum verður keppt í gæðingatölti nema í unghrossaflokk þar sem riðið verður eftir sætaröðun eins og á hefðbundnum vetrarmótum.
Dagskrá
- Pollaflokkur
- Unghrossaflokkur
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- Heldri menn og konur 55+
- Áhugamenn & konur 2
- Áhugamenn & konur 1
- Opinn flokkur / Meistaraflokkur
Upplýsingar um skráningu og skráningargjald.
Velja þarf Sleipni sem mótahaldara.
Frítt er fyrir knapa í pollaflokk og þeir sem hyggjast skrá pollana sína skulu senda fullt nafn knapa, nafn
hests og lit hests í tölvupósti á netfang vetrarmótanefndar. vetrarmot@sleipnir.is
- Barnaflokkur 1500kr.
- Unglinga og Ungmennaflokkur 2000kr.
- 55+, áhugamenn 1 & 2 og opinn flokkur og unghrossaflokkur 3000kr.
Við viljum minna á að heiti flokkana sem á að skrá sig í á sportfeng eru ekki þær greina sem keppt er í.
Nöfn flokka í skráningakerfi.
- Barnaflokkur - Tölt T1 barnaflokkur
- Unglingaflokkur - Tölt T1 unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur - tölt T1 ungmennaflokkur
- Heldri menn & konur 55+ - Tölt T1 opinn flokkur 3. flokkur
- Áhugamenn & konur 2 - Tölt T1 opinn flokkur 2. flokkur
- Áhugamenn & konur 1 - Tölt T1 opinn flokkur 1. flokkur
- Opinn flokkur - B-flokkur - Meistaraflokkur
- Unghrossaflokkur - Opinn flokkur
MJÖG MIKILVÆGT fyrir þá sem kjósa að millifæra skráningagjaldið frekar enn að borga með korti þurfa að senda kvittun millifærslurnar á netfangið vetrarmot@sleipnir.is annars fer skráningin ekki í gegn.
Upplýsingar um millifærslu
Reikn. nr. 0152-26-100774
Kt. 590583-0309
Ef einhverja spurningar vakna varðandi skráningu eða annað sem tengist mótinu er bent á að senda tölvupóst á netfangiðvetrarmot@sleipnir.is eða hringja / senda sms á Unnstein í síma 7873391.
Vetrarmótanefnd Sleipnis 2021.