Þriðja og jafnframt síðasta vetrarmót Sleipnis verður haldið laugardaginn 1. maí. n.k. Kl. 12:00 á Brávöllum.
Skráning mótsins fer fram á mótaforritinu Sporfeng eins og verið hefur hjá okkur í vetur og hefst skráning 27. apríl n.k og stendur yfir til föstudagsins 30. apríl kl 14:00.
https://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Mótið verður með öðru sniði en áður hefur verið en að þessu sinni verður keppt í Gæðingatölti. Segja má að gæðingatölt sé einskonar blanda af gæðingakeppni og vetrarmóta fyrirkomulagi. Í Gæðingatölti er riðið hægt tölt og yfirferðatölt eftir skala gæðingadómara sem verða 3 talsins. Forkeppni er riðin í hverjum flokki þar sem inná völlinn koma 3-4 knapa í einu og svo eru 8 efstu knapar sem ríða úrslit í hverjum flokk. Í öllum flokkum verður keppt í gæðingatölti nema í unghrossaflokk þar sem riðið verður eftir sætaröðun eins og á hefðbundnum vetrarmótum. ( fæðingarár hrossa í unghrossaflokk er 2016 og 2017)
Vegna ástandsins í samfélaginu þá biðjum við áhorfendur sem verða á svæðinu að sitja ef hægt er inní bílum sínum en ef fólk vill sitja úti þá viljum við biðja um að sóttvarnir verði virtar eins vel og hægt er. Ef fólk þarf að koma inn í dómpall þarf að vera með grímu og einnig í sjoppu ef hún verður á staðnum. Við erum öll í þessu saman bæði knapar og áhorfendur og enginn vill verða valdur af því að lokað verði fyrir mótahald vegna brota á sóttvörnum eða slíku.
Dagskrá
- Pollaflokkur
- Unghrossaflokkur
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur
- Heldri menn og konur 55+
- Áhugamenn & konur 2
- Áhugamenn & konur 1
- Opinn flokkur / Meistaraflokkur
Upplýsingar um skráningu og skráningargjald.
Velja þarf Sleipni sem mótahaldara.
Frítt er fyrir keppendur í pollaflokk en þeir sem hyggjast skrá pollana sína skulu senda fullt nafn knapa, nafn hests og lit hests í tölvupósti á netfang vetrarmótanefndar. vetrarmot@sleipnir.is
Barnaflokkur 1500kr.
Unglinga og Ungmennaflokkur 2000kr.
55+, áhugamenn 1 & 2 og opinn flokkur og unghrossaflokkur 3000kr.
Við viljum minna á að heiti flokkana sem á að skrá sig í á sportfeng eru ekki þær greina sem keppt er í.
Nöfn flokka í skráningakerfi.
- Barnaflokkur - Tölt T1 barnaflokkur
- Unglingaflokkur - Tölt T1 unglingaflokkur
- Ungmennaflokkur - tölt T1 ungmennaflokkur
- Heldri menn & konur 55+ - Tölt T1 opinn flokkur 3. flokkur
- Áhugamenn & konur 2 -Tölt T1 opinn flokkur 2. flokkur
- Áhugamenn & konur 1 - Tölt T1 opinn flokkur 1. flokkur
- Opinn flokkur -B-flokkur - Meistaraflokkur
- Unghrossaflokkur - Opinn flokkur
MJÖG MIKILVÆGT fyrir þá sem kjósa að millifæra skráningagjaldið frekar enn að borga með korti þurfa að senda kvittun millifærslunnar á netfangið vetrarmot@sleipnir.is annars fer skráningin ekki í gegn.
Upplýsingar um millifærslu
Reiknnr. 0152-26-100774
Kt. 590583-0309
Ef einhverja spurningar vakna varðandi skráningu eða annað sem tengist mótinu er bent á að senda tölvupóst á netfangiðvetrarmot@sleipnir.is eða hringja eða senda sms á Unnstein í
síma 7873391.
Vetrarmótanefnd Sleipnis 2021.